Ís uppskriftir fyrir ísvélar
Vanilluís
í skammt sem dugar fyrir 4 (eða 6 ef ísinn er
borinn fram með t.d. köku) þarf:
8 eggjarauður
120 g sykur
5 dl mjólk
4 tsk undanrennuduft
1 vanillustöng
Þeytið eggjarauðurnar vel saman saman við sykurinn og undanrennuduftið þangað
til þetta er orðið að ljósu kremi.
Hitið mjólkina í þykkri pönnu eða potti. Skerið vanillustöngina í tvennt og
skrapið fræin innanúr og bætið út í mjólkina. Saxið síðan vanillustöngina í
minni búta og bætið henni við. Þegar mjólkin kemur að suðu er hitinn lækkaður og
mjólkurblandan látin malla í fimm mínútur.
Hitið þá aftur upp að suðupunkti og hellið síðan mjólkinni yfir eggjablönduna
og hrærið vel saman. Þessu er síðan öllu bætt aftur út í pottinn. Hitið upp en
passið að hafa hitann ekki of mikinn, þá breytist blandan í búðing. Hrærið í á
meðan með sleif og þegar blandan fer að þykkna og loða við hana er slökkt á
hitanum.
Hellið í skál í gegnum sigti og pressið vanillustangarbitana vel. Kælið
skálina í vatnsbaði og setjið loks í ísvél.

Jógúrtís með ananas og kiwi
Innihald
- 200 g ananaskurl (eða ferskur ananas) í eigin safa
- 1 vel þroskað kiwi í bitum, afhýtt og saxað
- 120 ml hreinn ananassafi
- 70 ml agavesíróp
- 125 ml kókosmjólk
- 125 ml hrein jógúrt
Aðferð
1. Sigtið ananasinn og hellið safanum í skál.
2. Geymið kurlið.
3. Afhýðið kiwiið og skerið í bita.
4. Hrærið saman agavesírópi, jógúrti, kókosmjólk og ananassafa.
5. Ef notuð er ísvél: Setjið blönduna í ísvél í um 30 mínútur og setjið svo í
plastbox. Hrærið ananaskurli og kiwibitum út í. Setjið boxið í frystinn og
frystið í nokkrar klukkustundir eða þangað til ísinn er tilbúinn. 6. Ef ekki er notuð ísvél:
7. Hellið blöndunni í grunnt plastbox og setjið í frystinn. Takið út frystinum
á um hálftíma - klukkustundar fresti og brjótið ískristallana ef þeir myndast.
Eftir um tvær klukkustundir skuluð þið hræra ananaskurlinu og kiwibitunum út í.
Setjið aftur í frystinn og frystið þangað til ísinn er tilbúinn.
8. Látið ísinn þiðna í ísskáp í um 30-40 mínútur áður en hann er borinn fram.
Þannig verður auðveldara að skafa úr boxinu.